14.08.1959
Efri deild: 13. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (328)

Starfslok deilda

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta það, að ég minnist ekki að hafa sagt það hér í þessari deild, að það væri víst, að ég hyrfi héðan. Hins vegar þakka ég hv. þm. Barð. fyrir góðar óskir mér til handa og góð ummæli. Get ég vottað það sama, hvað hann snertir. Það kann vel að vera, að ég hverfi héðan nú, en ég minnist ekki að hafa neinu lýst yfir um það.