14.08.1959
Neðri deild: 17. fundur, 79. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í B-deild Alþingistíðinda. (331)

Starfslok deilda

forseti (EOl):

Þetta er að öllu forfallalausu síðasti fundur þessarar hv. d. á þessu þingi og þessu kjörtímabili. Ég leyfi mér að þakka öllum hv. þdm. fyrir ágæta samvinnu og umburðarlyndi við mig í mínum störfum. Ég leyfi mér að óska þeim öllum góðrar heimferðar, þeim sem heim fara og góðrar heimkomu og þeim öllum alls persónulegs velfarnaðar. Ég þakka þeim fyrir alla þá samvinnu, sem ég hef við þá átt þann tíma, sem ég hef gegnt þessum störfum. Ég vil enn fremur leyfa mér að þakka skrifurum fyrir ágæta samvinnu og skrifstofustjóra og öðru starfsfólki þingsins fyrir ágætt samstarf. Ég óska svo öllum hv. þdm. alls góðs.