03.12.1959
Sameinað þing: 6. fundur, 80. löggjafarþing.
Sjá dálk 3641 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)

Varamenn taka þingsæti, rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Frá forseta Nd. hefur svo hljóðandi bréf borizt:

„Reykjavík, 1. des. 1959. — Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá Hannibal Valdimarssyni, 4. landsk. þm.:

„Með því að ég er á förum til útlanda í nauðsynjaerindum og verð fjarverandi um hálfs mánaðar skeið, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður taki sæti mitt á Alþingi, meðan ég verð fjarverandi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu Alþingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal, forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Varaþm. hv. 4. landsk. þm., Páll Kristjánsson, mun vera kominn til þings, og hefur kjörbréf hans borizt. Verður nú 10 mínútna fundarhlé, meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréfið. –[Fundarhlé.]