17.11.1960
Sameinað þing: 15. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (1661)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Frá forseta Nd. hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 16. nóv. 1960.

Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Jóni Skaftasyni, 4. þm. Reykn.:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að varamaður, Valtýr Guðjónsson forstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt, með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf þessa varaþm. hefur enn ekki borizt, og verður því að fresta þessu máli, og er það tekið út af dagskrá.