20.12.1960
Sameinað þing: 29. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (2348)

141. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Það hefur verið venja, eins og menn vita, að gefa nokkurt þinghlé um hátíðarnar, og ég hef þess vegna leyft mér fyrir hönd ríkisstj. að bera fram till. á þskj. 210 um, að þinginu verði frestað, eins og þar greinir, enda komi það saman að nýju eigi síðar en 16. janúar.