25.01.1961
Sameinað þing: 34. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í D-deild Alþingistíðinda. (2674)

149. mál, jafnvægi í byggð landsins

Sigurvin Einarsson; Herra forseti. Hv. 1. þm. Vestf. hefur kvatt sér hér hljóðs til þess að leitast við að sanna einhver svik á Framsfl., og þ. á m. komst hann að þeirri niðurstöðu, að ég hefði svikið á vorþinginu 1956, en ég var fyrst kosinn á þing sumarið 1956. Þetta kalla ég vel að verið í málflutningi af manni, sem kominn er á áttræðisaldur.