22.02.1961
Sameinað þing: 41. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í D-deild Alþingistíðinda. (2954)

148. mál, nýtt símstöðvarhús á Selfossi og sjálfvirkt símakerfi á Suðurlandi

Flm. (Unnar Stefánsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins þakka hæstv. ráðh. fyrir þessar greinagóðu upplýsingar og taka fram, að þegar ég spurðist fyrir um þessi mál hjá yfirverkfræðingi póst- og símamálastjórnar fyrir nokkru, tjáði hann mér, að þetta væri í undirbúningi og enn væri ekki farið að gera neinar ákveðnar tillögur um það, í hvaða röð hinir ýmsu landshlutar yrðu teknir fyrir. Ég spurðist fyrir um þetta aftur í gær til að árétta fyrri umsagnir, og þá var mér tjáð, að enn væri ekki búið að gera neina áætlun, þetta væri enn á frumstigi. Það gleður mig mikið að heyra upplýsingar hæstv. ráðh, um, að þetta sé þegar fastákveðið.