30.11.1960
Sameinað þing: 20. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 1138 í D-deild Alþingistíðinda. (3096)

107. mál, samstarfsnefnd launþega og vinnuveitenda

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram tvær fsp., sem eru á þskj. 121, til hæstv. félmrh. Sú fsp., sem nú er til umr., hljóðar á þessa leið: ,;Hvað líður framkvæmd þál. frá 1. júní 1960 um rannsókn á starfsgrundvelli samstarfsnefnda launþega og vinnuveitenda innan einstakra fyrirtækja?”