15.11.1960
Efri deild: 22. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 30 í B-deild Alþingistíðinda. (48)

40. mál, skemmtanaskattsviðauki 1961

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, felur í sér heimild til handa hæstv. ríkisstj. til þess að innheimta með viðauka skemmtanaskatt á næsta ári. Þessi heimild er óbreytt frá því, sem verið hefur í gildi undanfarin ár. N. hefur haft frv. þetta til athugunar og leggur einróma til, að það verði samþykkt.