20.03.1961
Efri deild: 76. fundur, 81. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (819)

184. mál, Lánasjóður íslenskra námsmanna

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Þegar frv. þetta var til 1. umr. hér í þessari hv. þd., fylgdi hæstv. menntmrh, því úr hlaði með ýtarlegri ræðu. Menntmn. hefur athugað frv. og leggur einróma til, að það verði samþykkt óbreytt. Um frv. sjálft sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða, en vísa sem sé til ræðu menntmrh., sem ég áðan nefndi og hann flutti hér við 1. umr. málsins í deildinni.