06.11.1961
Sameinað þing: 12. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2736 í B-deild Alþingistíðinda. (2444)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Alfreð Gíslason læknir):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Inga R. Helgasonar héraðsdómslögmanns, en hann hlaut annað varauppbótarþingsæti Alþb. Nefndin mælir með, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.