07.04.1962
Sameinað þing: 51. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2742 í B-deild Alþingistíðinda. (2463)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (FS):

Það hefur borizt bréf frá forseta Nd., svo hljóðandi:

„Reykjavík, 6. apríl 1962. Einar Ingimundarson, 4. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég mun ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur vegna embættisanna heima fyrir, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að annar varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Guðjón Jósefsson bóndi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti Nd.

Með bréfi þessu fylgir kjörbréf, gefið út af yfirkjörstjórn Norðurlandskjördæmis vestra, til handa Guðjóni Jósefssyni sem 2. varaþingmanni Sjálfstfl. í því kjördæmi. Ég mælist til þess, að kjörbréfanefnd taki kjörbréfið til meðferðar nú þegar, og mun gera hlé á fundinum, þannig að henni gefist tækifæri til þess, og verður hringt til fundar, þegar hann hefst að nýju. — [Fundarhlé.]