13.12.1961
Sameinað þing: 22. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (359)

1. mál, fjárlög 1962

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þegar hv. fjvn. óskaði eftir skiptingu á brúafé frá þm. Vestf., þá hittust þeir til að ræða um það, hvaða till. skyldi gera um skiptingu þess fjár, sem skyldi veita á fjárlögum. Þá var einnig því hreyft, hvort hægt væri að fá meira fé til þessara framkvæmda, og öllum var ljóst, að það væri ekki hægt, og það var fullt samkomulag um skiptinguna. Ég tel það því brigðmæli, bæði frá flm. og þeim öðrum, sem greiða atkv. með þessum till. hér, að hafa brotið það samkomulag, sem gert var í nefndinni um skiptingu fjárins, og segi því nei.