18.04.1963
Neðri deild: 79. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (1273)

242. mál, fasteignamat

Forseti (JóhH):

Ég þakka fyrir þessar ábendingar, og það er rétt, að það eru nokkur afbrigði á þessu máli. En lífið tekur stundum fram fyrir bókstafinn, og með því að svo er, þá mun ég bera upp hinar einstöku greinar þessa frv. nú við 3. umr., enda þótt það sé ekki venja. En þá verður fullnægt efnislega því ákvæði þingskapa, að hver grein fyrir sig hafi verið borin upp.