03.04.1963
Sameinað þing: 44. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (1827)

Efnahagsbandalagsmálið

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Út af tilmælum hv. 1. þm. Austf. (EystJ) finnst mér tímabært, að ósk komi fram frá öðrum þm., sem eiga hér mál, sem ekki hafa verið enn tekin til umr. í hv. Sþ., en hafa oft verið á dagskrá og það jafnvel svo að vikum skiptir. Það mál, sem hv. þm. fór fram á að yrði tekið nú fyrir og rætt, hefur verið rætt hér í Sþ. Umr. um þetta mál hafa einnig komið inn í umr. um mörg önnur mál, sem eru á dagskrá deilda þingsins. En eins og ég hef þegar sagt, eru nú mál á dagskránni, sem hafa ekki verið rædd enn þá, tímabær mál að dómi flm. a.m.k., og ég vil því beina þeim tilmælum til forseta, að það verði reynt að ganga eitthvað á þann langa lista, sem liggur hér fyrir á dagskrá Sþ.