02.04.1964
Neðri deild: 73. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1885 í B-deild Alþingistíðinda. (1349)

68. mál, lausaskuldir iðnaðarins

Jónas G. Rafnar:

Herra forseti. Fyrir hönd okkar flm. frv. vil ég leyfa mér að þakka hv. fjhn. fyrir afgreiðslu þess og vil taka það fram, að við erum fyrir okkar leyti samþykkir brtt. meiri hl, n. á þskj. 402, sem er sniðin eftir l. um iðnlánasjóð, sem samþykkt voru hér á hv. Alþingi í fyrra.