14.11.1963
Sameinað þing: 16. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2218 í B-deild Alþingistíðinda. (1677)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 14. nóv. 1963.

Þorvaldur Garðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri Sjálfstfl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Ólafs Thors, 1. þm. Reykn., sem að læknisráði hefur tekið sér hvíld frá þingstörfum næstu mánuði, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að varamaður hans, Axel Jónsson fulltrúi, taki ó, meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Axels Jónssonar, varamanns í Reykjaneskjördæmi, hefur áður verið rannsakað. Þarf því ekki að fara fram athugun á því og tekur hann nú sæti hv. 1. þm. Reykn. á Alþingi.