19.12.1963
Efri deild: 30. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í B-deild Alþingistíðinda. (187)

95. mál, vegalög

Forseti (EggÞ):

Í tilefni af ósk hv. síðasta ræðumanns um, að hæstv. samgmrh. yrði hér viðstaddur, vil ég taka fram, að ráðh. hefur sent þau boð, að hann sé á fundi hér á neðri hæð hússins með vegamálastjóra og ráðuneytisstjóra samgmrn. einmitt um þetta mál og geti af þeim ástæðum ekki verið mættur hér.