17.02.1964
Neðri deild: 57. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 755 í B-deild Alþingistíðinda. (417)

152. mál, laun forseta Íslands

Frsm. (Davíð Ólafsson):

Herra forseti. Fjhn. þessarar hv. d. hefur fjallað um þetta frv. á þskj. 275, og nál. er á þskj. 280, þar sem n. mælir með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Við flutning þessa frv. hér í hv. d. var af hálfu ríkisstj. gerð grein fyrir efni þess og tilgangi, og er ekki ástæða til þess að rekja það frekar.