06.05.1964
Efri deild: 83. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (805)

110. mál, sjúkrahúsalög

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég tel ýmis rök mæla með þeirri brtt., sem hér liggur fyrir. Ég tel hins vegar, að í frv., eins og það er nú, séu það miklar hagsbætur fyrir sjúkrahúsin, einnig þau, sem þessi brtt. varðar, og þar sem það virðist sýnt, að samþykkt breytinga við frv. nú mundi tefla málinu sjálfu í hættu, segi ég nei.

Frv. samþ. með 18 shlj. atkv. og afgr. sem lög frá Alþingi (A. 634).