10.05.1965
Neðri deild: 87. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)

30. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Frv. um rannsóknir í þágu atvinnuveganna er hingað komið aftur frá Ed., sem gerði á því nokkrar breyt. Þessar breyt. eru ekki um nein af meginefnisatriðum frv. Þar sem tími er mjög af skornum skammti, hef ég valið þann kost að ráðgast við menntmn. — menn hvern fyrir sig um afstöðu þeirra, til þess að þurfa ekki að bíða eftir fundi. Hafa þeir allir látið í ljós þá skoðun, að þeir geri ekki athugasemd við breyt. Ed. og get ég því mælt eindregið með því, að þessi hv. d. samþykki frv., eins og það er þaðan komið.