04.03.1965
Sameinað þing: 29. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2347 í B-deild Alþingistíðinda. (2114)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Á 29. fundi í Sþ., 4, marz, mælti forseti (BF):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 4. marz 1965.

Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Vegna aðkallandi embættisanna heima í héraði get ég ekki sinnt þingstörfum um nokkurn tíma. Vildi ég því mega biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis jafnframt óska þess, að fyrsti varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Óskar Jónsson bókari, Selfossi, taki sæti á þingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Óskars Jónssonar bókara, Selfossi, hefur áður verið rannsakað. Þarf því ekki að fara fram rannsókn á því að þessu sinni og tekur hann sæti á þingi sem 9. þm. Sunnl. Býð ég hann velkominn til þingstarfa.