10.03.1965
Sameinað þing: 31. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í D-deild Alþingistíðinda. (3274)

218. mál, aðstoð til vatnsveitna

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Á síðasta Alþ. flutti hv. 4. þm. Sunnl. ásamt þrem þm. öðrum frv. til l. um breyt. á l. nr. 93 frá 5. júní 1947, um aðstoð við vatnsveitur. Á seinustu dögum þingsins var mál þetta afgr. frá hv. Alþ. og þá vísað til hæstv. ríkisstj. í trausti þess„ að hún láti fram fara athugun á málinu fyrr næsta reglulegt Alþ., eins og segir í ályktun Alþ. Á þskj. 285 höfum við hv. 4. þm. Sunnl. leyft okkur að flytja fsp. út af þessu máli, en vegna fjarveru hans hef ég hér orð fyrir okkur. Fsp. okkar er á þessa leið:

„Hvað líður athugun á frv. því til breyt. á l. nr. 93 5. júní 1947, um aðstoð til vatnsveitna, sem vísað var til ríkisstj. á síðasta Alþ.?