19.11.1964
Efri deild: 20. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í B-deild Alþingistíðinda. (69)

58. mál, innlent lán

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Frv. þetta hefur gengið gegnum Nd, og engar breytingar gerðar á því þar aðrar en ein smábreyting á tilvitnun í lög. Það er í 3. gr. frv., tilvitnunin í tekjuskattslögin. Í frv. upphaflega var vitnað í lög um tekjuskatt. og eignarskatt frá 1962, en með breytingum, sem gerðar voru í vor á tekjuskattsl., var ákveðið, að þær skyldu felldar inn í 1. frá 1962 og gefnar út að nýju, en þegar frv. var að þessu leyti upphaflega samið, var því ekki lokið, og er sjálfsagt að gera þessa leiðréttingu á. Önnur breyting er ekki gerð.