18.04.1966
Efri deild: 65. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2412 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)

188. mál, landshöfn í Þorlákshöfn

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Þegar undan eru skildar aðgæzluverðar hafnir á Eyrarbakka og Stokkseyri og hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn, er enn þá um algjört hafnleysi að ræða á allri suðurströnd landsins, vestan frá Grindavík austur að Hornafirði. Úti fyrir landinu eða í Vestmannaeyjum er að vísu fullkomin og ágæt höfn, en þar sem um er að ræða stærstu verstöð landsins með sífellt stækkandi vélbátaflota, verður vart hægt að gera ráð fyrir, að sú höfn annist mikla þjónustu umfram þá, sem nauðsyn ber til að veita heimaflota Vestmannaeyinga, ásamt óumflýjanlegri og nauðsynlegri þjónustu við kaupskipaflotann. Fyrir suðurströnd landsins eru þó óvefengjanlega ein fengsælustu fiskimið landsins og hafa stundum verið talin gjöfulustu gullkistur íslenzka fiskveiðiflotans. Af framangreindum ástæðum er eðlilegt, að menn hafi lengi velt fyrir sér möguleikunum á því að byggja örugga höfn á þessari mikilvægu, hafnlausu strandlengju. Það, sem af er þessari öld, má segja, að þessar hugleiðingar hafi verið uppi, og mikilsverðar athuganir hafa farið fram. Á tímum áraskipanna var útræði frá Þorlákshöfn verulegt, en lagðist niður með tilkomu vélskipanna. Þrátt fyrir þær mismunandi öru breytingar, sem átt hafa sér stað á stærð og útbúnaði veiðiflotans, má segja, að umr. um staðsetningu hafnar í Þorlákshöfn hafi verið uppi allt frá síðustu aldamótum.

Till. í framkvæmdaátt hafa þó í höfuðatriðum verið þrjár. Sú fyrsta árið 1919 með till. N. B. Kirks, en áætlanir hans um framkvæmdir miðuðust við 320 þús. fm hafnarsvæði innan hafnargarða, sem samtals áttu að verða um 1600 m langir. Áætlaður kostnaður við þessar framkvæmdir var 4.2 millj. kt. í gjaldmiðli, þeirra tíma.

Það er þó ekki fyrr en 10 árum síðar, eða árið 1929, að framkvæmdir hefjast og þá með nokkuð breyttri áætlun frá því, sem Kirk hafði hugsað sér. Framkvæmdir þessar urðu þó minni en ráð hafði verið fyrir gert. Byggðir voru nokkrir skjólgarðar, er bættu lítið eitt lendingarskilyrði í svokallaðri Norðurvör, og enn fremur var byrjað á smíði Suðurgarðs.

Á árinu 1946 taka sýslurnar, þ.e. Árnes- og Rangárvallasýsla, höndum saman um að hrinda framkvæmdum á ný af stað í Þorlákshöfn. Þá var jörðin Þorlákshöfn keypt og nauðsynlegar endurbætur gerðar á þeim litlu mannvirkjum, er fyrir voru, ásamt vegagerð þangað. Þær framkvæmdir, sem með þessum hætti eiga sér stað í Þorlákshöfn til ársloka 1960, kosta um 14 millj. kr., og er greinilega frá þeim skýrt í grg. frv.

Yfirstandandi framkvæmdir í Þorlákshöfn hefjast svo með útboði Vitamálaskrifstofunnar árið 1961 að undangengnum undirbúningsrannsóknum. Samkv. útboði þessu var ætlazt til, að í höfninni myndaðist 1900 fm athafnasvæði fyrir vélbáta. Verksamningur samkv. útboði þessu var undirritaður við fyrirtækið Efra-fall s.f. í maí 1962, og hófust framkvæmdir skömmu síðar. En ári frá undirritun hins fyrsta samnings var aftur undirritaður viðbótarverksamningur, sem gerði ráð fyrir 2000 fm aukningu á athafnasvæði hafnarinnar.

Á grundvelli framangreindra samninga hafði hinn 1. des. s.l. verið unnið fyrir rúmlega 50 millj. kr. Þrátt fyrir þessar háu fjárhæðir telur vitamálastjórnin, að enn muni skorta 30 millj. kr., miðað við núverandi verðlag, til að ljúka þeim áfanga, sem boðinn var út árið 1961. Af framangreindum tölum er ljóst, að þau félög, sem hér eiga landfræðilega hlut að máli, geta af eigin rammleik ekki staðið undir afborgunum og vöxtum af þegar fengnum lánum og þá að sjálfsögðu enn síður undir kostnaði við framhaldsframkvæmdir.

Svo sem frá er greint í grg., hefur ríkissjóður þegar greitt vegna þessara hafnarframkvæmda nálega 30 millj. kr. í afborgunum og vöxtum af þegar teknum lánum. Það fer því ekki á milli mála hjá þeim, sem raunsætt vilja á málið líta, að framhaldandi framkvæmdir í hafnarmálum Þorlákshafnar verður að leysa með atbeina og beinni forgöngu ríkisins.

Af framangreindum ástæðum er í frv. þessu lagt til, að Þorlákshöfn verði gerð að landshöfn. Að gefnu tilefni í dagblöðum bæjarins varðandi efasemdir um einstök atriði í framkvæmdum í Þorlákshöfn, þá vil ég leyfa mér að gefa eftirfarandi skýringar, sem vitamálastjóri hefur látið mér í té, en þær eru orðrétt svo hljóðandi:

„Þýzka verktakafyrirtækið Hochtief gerði á sínum tíma athuganir og áætlanir og útboðsteikningar varðandi stækkun Þorlákshafnar. Á þeim grundvelli var verkið boðið út og síðan gerður samningur við Efra-fall s.f. í maí 1962 um framkvæmd verksins. Sá samningur var byggður á breyttri gerð mannvirkja samkv. till. Efra-falls. Við frekari athugun á aðstæðum kom í ljós, að ýmsir annmarkar voru á framkvæmd verksins frá því, sem upphaflega hafði verið ráð fyrir gert. Meginorsök þess var, að þar sem álitið var, að fastur botn væri fyrir hendi, var ekki um það að ræða, heldur aðeins grjótlag, sem ekki hafði verið komizt í gegnum við boranir. Þá var og það, að steypuefni og fyllingarefni, sem hugsað hafði verið að taka í næsta nágrenni hafnarinnar, var mjög til þurrðar gengið, þar sem ekki þótti ráðlegt að taka frekara efnismagn úr malarkömbum sunnan hafnarinnar, þar sem allmikil hætta var þá á skemmdum í landi af völdum sjávarfalla. Þessar tvær meginástæður urðu til þess, að endurskoða varð byggingaráætlun og gerð mannvirkja. Var sú endurskoðun gerð á vegum Efra-falls í samráði við Vitamálaskrifstofuna og leiddi til breyttrar gerðar mannvirkja, þannig að í fyrsta lagi var aðalgarðurinn breikkaður úr 12.5 m í 14.5 m og undirstöðu var breytt. Þá var og fengið steypuefni að með ærnum tilkostnaði. Verð suðurgarðsins samkv. tilboði, þegar tekið er tillit til aðkeypts steypuefnis, hefði átt að vera 20 millj. 526 þús. kr., en einingarverð, reiknað á sama hátt, — þýðir verkið eins og það var unnið, þ.e.a.s. með breikkun og öðrum breytingum, er gera varð, — varð 26 millj. 729 þús. kr., þannig að hækkanirnar vegna breytinga voru 6,2 millj. kr. eða 33%. Ef tilboði Hochtief hefði verið tekið, má búast við, að tilsvarandi breytingar hefði orðið að gera á mannvirkjunum með tilsvarandi hækkunum.

Endanlegur kostnaður til verktaka vegna efniskaupa við suðurgarðinn hefur orðið um 35 millj. kr., þannig að hækkanir af völdum verðlagsbreytinga og fyrrgreindra atriða hafa orðið um 7.6 millj. kr. eða um 28% af grunnverði mannvirkisins.

Hvað norðurgarðinn snertir, þá var hann í upphafi ráðgerður 12 m breiður og 187 m langur, þ.e.a.s. hinn nýi hluti hans. Með tilkomu hinna stóru báta og sívaxandi útgerðar í Þorlákshöfn var síðan ákveðið að breikka garðinn um rúma 2 m, þannig að hann er nú 14.35 m breiður, og jafnframt ákveðið að lengja hann um 13 m, þannig að heildarlengingin verður nú 200 m. Jafnframt var framálmum garðsins snúið nokkuð, þannig að allmiklu meira rými fæst innan garðanna en áður, auk þess sem með frekari lengingu garðsins er möguleiki á, að það rýmkist enn frekar til.

Samhliða þessari breytingu var jafnframt athugað, hvort ekki væri hægt að gera innri garðinn nokkru ódýrari en tilboð Efra-falls bar með sér. Ef reiknað er með, að aukning á breikkun garðsins kosti jafnmikið og aðrir hlutar garðsins svo sem er mjög nálægt lagi, þá hefur garðurinn fullbúinn 187 m langur kostað um 31.4 millj. kr. miðað við einingarverðtilboð eða 168 þús. kr. á lengdarmetrann.

Eftir endurskoðun og útreikninga á nýrri gerð verksins virðist svo sem hver metri ætti ekki að kosta meira en 130 þús. kr. miðað við einingarverð, þannig að um allverulegan sparnað hefur verið að ræða við endurskoðunina.

Af innri garðinum hafa þegar verið fullgerðir 53 m, og hefur kostnaðurinn við það orðið alls um 9.5 millj. kr. Þá var og eldri hluti norðurgarðsins hækkaður og breikkaður, og varð kostnaður við það tæplega 1 millj. kr. Áætlað verð þess, sem er óbyggt af nyrðri garðinum, miðað við verðlag í dag, er rúmar 30 millj. kr. Heildarkostnaður við verkið, eins og það stendur í dag, mun vera um 51 millj. kr., og er þá í reiknaður allur kostnaður Vitamálaskrifstofunnar og verktaka, efnisbirgðir og kostnaður greiddur fyrirfram í innréttingum á vinnustað, stálmótum og öðru þess háttar, sem hafa reiknazt með á þeim hluta verksins, sem eftir er.

Samkv. framanskráðu má draga niðurstöðurnar saman þannig, að tilboðsverð var 43.67 millj. kr., verður eftir breytingar þær, er nauðsynlegt var að gera vegna breyttra aðstæðna, 58.1 millj., eða hækkaði um 33%. Líklegt heildarverð mannvirkjanna, með óbreyttu verðlagi frá því sem nú er í dag, er 82 millj. kr. Verðhækkanir eru því 24 millj. eða 41%.“

Þessar athugasemdir vildi ég þegar láta koma fram að gefnu tilefni, eins og ég áðan skýrði frá.

Sú takmarkaða hafnaraðstaða, sem þegar er fyrir hendi í Þorlákshöfn, hefur sannað, svo að ekki verður um villzt, nauðsyn á lúkningu hafnarinnar, bæði hvað fiskiskipaflotann áhrærir hvaðanæva af landinu og ekki síður þann þjónustuauka, sem farskip hafa þar þegar fengið, með upp- og útskipun hvers konar nauðsynjavara. Það verður vart dregið í efa af neinum, sem kynnir sér alla málavöxtu, að eðlilegt sé að gera Þorlákshöfn að landshöfn, þeirri þriðju í röðinni.

Um einstakar gr. frv. skal ég ekki vera fjölorður. Í aths. frv. er ítarlega gerð grein fyrir efni þeirra hverrar um sig, en þær eru almennt efnislega samhljóða gildandi I. um landshafnir í Njarðvíkum og Rifi.

Herra forseti, það er till. mín, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.