04.11.1965
Neðri deild: 11. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2499 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)

37. mál, skrásetning réttinda í loftförum

Frsm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Frv. þetta um skrásetningu réttinda í loftförum er flutt af samgmn. d. samkv. ósk hæstv. samgmrh. Hafa einstakir nm. óbundnar hendur um flutning og fylgi við brtt. við það.

Frv. þetta var flutt á síðasta Alþ. sem stjfrv., en varð ekki útrætt í Ed. Þessi hv. þd. hafði þó afgreitt málið. Á síðasta ári voru sett lög um loftferðir nr. 34 1964. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er samið í framhaldi af þeim I. og með sama hætti og þau. Samkv. 1. gr. l. nr. 49 1947 skal stofnun og vernd eignarréttar og eignarhafta á skrásettu loftfari fara eftir reglum um fasteignir að svo miklu leyti, sem þeim verður við komið. Nú eru loftför alþjóðleg samgöngutæki. Er auðsætt,að móta ber reglur um eignarrétt og eignarhöft í loftförum með hliðsjón af því. Genfarsáttmálinn frá 19. júní 1948 geymir reglur um þessi efni. Er sáttmálinn reistur á málamiðlan milli lögskipana sáttmálaríkjanna. Ísland hefur undirritað þennan sáttmála, en hefur eigi fullgilt hann. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er við það miðað, að Ísland staðfesti sáttmálann og öðlist þar með þá vernd fyrir loftför sín í sáttmálaríkjunum, sem sáttmálinn veitir. En sáttmálinn geymir reglur um, að hve miklu leyti sáttmálaríki ber að virða réttindi í loftförum, er heima eiga í öðrum sáttmálaríkjum. Koma slíkar reglur einkum til greina, þegar innlendur aðili eignast erlent loftfar, svo og ef lögsókn er hafin gegn fyrirsvarsaðila erlends loftfars hér á landi. Sérstaklega má benda á, að aðild ríkis að sáttmálanum veitir hagræði, þegar leitað er láns gegn veði í loftförum.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta frv. fyrir hönd samgmn., en legg til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.