15.11.1965
Sameinað þing: 11. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 2810 í B-deild Alþingistíðinda. (2165)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 13. nóv. 1965. Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf frá Ragnari Arnalds, 5. landsk. þm.:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna anna, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi, og með skírskotun til 138. gr. I. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 2. varamaður landsk. þm. Alþb., Karl Guðjónsson kennari, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf til handa Karli Guðjónssyni kennara liggur hér fyrir, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Verður á meðan gert hlé á fundinum. —