24.03.1966
Neðri deild: 59. fundur, 86. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (571)

148. mál, Iðnlánasjóður

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka hv. iðnn. fyrir skjóta og röggsamlega afgreiðslu þessa máls. Ég tel mikils virði, hvað þingið hefur tekið þessu máli greiðlega. Ég tel það góðs vita, sem iðnaðurinn má vel við una.