07.03.1967
Efri deild: 48. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1522 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)

65. mál, löggilding á verslunarstað í Egilstaðarkauptúni

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Frv. þetta um að löggilda verzlunarstað í Egilsstaðakauptúni í Suður-Múlasýslu er flutt af öllum þm. Austf., sem sæti eiga í Nd. Það hefur farið, ágreiningslaust í gegnum Nd. Allshn. þessarar hv. d. hefur athugað frv. og ekki fundið neitt athugavert við það og mælir með samþykkt þess, eins og nál. á þskj. 284 ber með sér.