17.12.1966
Efri deild: 33. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (1655)

Þingsetning

forseti (SÓÓ):

Þetta verður síðasti fundur þessarar hv. d. fyrir þinghlé. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. þdm. ánægjulega samveru og samvinnu það sem af er þessu þingi. Ég óska þingmönnum utan af landsbyggðinni góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Ykkur öllum og fjölskyldum ykkar óska ég gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Sömu óskir færi ég öllu starfsfólki Alþingis. Megum við svo öll heil hittast að afloknu þinghléi.