20.03.1967
Neðri deild: 56. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 817 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

147. mál, ráðstafanir vegna sjávarútvegsins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Það hefur ekki gefizt neitt sérstakt tilefni í þeim umr., sem fram hafa farið nú, umfram það, sem kom fram við 1. umr., sem gert það nauðsynlegt af minni hálfu, að til frekari umr. sé stofnað. Ég vildi aðeins nota tækifærið núna til þess að þakka hv. sjútvn. fyrir góða og skjóta afgreiðslu málsins og vænti þess, að málið nái fram að ganga nú, áður en þinghlé verður gert um páskana.