04.04.1968
Neðri deild: 90. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (1142)

18. mál, veiting ríkisborgararéttar

Dómsmrh.(Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Frv. þetta er komið frá Ed. og hefur verið afgreitt þaðan með hefðbundnum hætti. Það hefur verið farið eftir almennum reglum um veitingu ríkisborgararéttar, sem Alþ. hefur mótað sjálft og miðað framkvæmd sína við á undanförnum árum. Ég vildi mega vænta, að hér gæti einnig orðið góð samstaða um málið og leyfi mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.