31.01.1968
Sameinað þing: 32. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2197 í B-deild Alþingistíðinda. (2014)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 30. jan. 1968.

Eðvarð Sigurðsson, 2. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður landsk. þm. Alþb., Ragnar Arnalds kennari, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Ragnars Arnalds liggur hér fyrir, og vil ég leyfa mér að biðja kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]