27.03.1968
Sameinað þing: 47. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 700 í D-deild Alþingistíðinda. (3212)

159. mál, ríkisábyrgðir

Fyrirspyrjandi (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 360 flutti ég ásamt tveimur hv. alþm. fsp. til hæstv. fjmrh. í sambandi við greiðslur Ríkisábyrgðasjóðs á s.l. ári. Í gær var útbýtt til hv. þm. reikningum Ríkisábyrgðasjóðs og skýrslu um starfsemi hans á árinu 1967, og er að finna í þeirri skýrslu svar við þeirri fsp., sem gerð er á þskj. 360.

Ég sé því ekki ástæðu til að fjölyrða um málið, en leyfi mér að þakka hæstv. fjmrh fyrir að hafa afhent þinginu það svar, sem ég tel fullnægjandi við fsp. minni.