10.04.1969
Neðri deild: 74. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 1682 í B-deild Alþingistíðinda. (1830)

164. mál, sala Úlfarsfells í Helgafellssveit

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið rætt á fundi landbn. og verið sent til umsagnar bæði landnámsstjóra og Jarðeignadeild ríkisins. Þetta er heimild um sölu á eyðijörð, og það hefur enginn, sem um þetta mál hefur fjallað, neitt við það að athuga að heimila söluna, og n. mælir einróma með því, að það verði samþ. óbreytt.