09.12.1968
Sameinað þing: 18. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2192 í B-deild Alþingistíðinda. (2247)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 3. des. 1968.

Bjartmar Guðmundsson, 11. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Eyjólfur Konráð Jónsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Rannsókn á kjörbréfi Eyjólfs Konráðs Jónssonar hefur áður farið fram, og hann hefur áður átt sæti á Alþ. Hann tekur nú sæti á þinginu sem varamaður fyrir 11. landsk. þm. Býð ég hann velkominn til þingstarfa.