07.02.1969
Sameinað þing: 27. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2208 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)

Þingsetning

forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. 30. jan. 1969 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið, samkv. till. forsrh., að Alþingi, 89. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfundar föstudaginn 7. febrúar 1969, kl. 14.

Gjört að Bessastöðum, 30. janúar 1969.

Kristján Eldjárn.

Bjarni Benediktsson.

Forsetabréf, er kveður Alþingi til framhaldsfunda.“

Samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis.

Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.