17.05.1969
Efri deild: 99. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 2209 í B-deild Alþingistíðinda. (2303)

Starfslok deilda

Forseti (JR):

Ég vil þakka hv. 3. þm. Norðurl. v. fyrir hans hlýju orð í minn garð og minnar fjölskyldu, og ég vil einnig þakka hv. þdm. fyrir, að þeir hafa tekið undir þau. — Þá er dagskrá þessa fundar tæmd. Fundinum er slitið.