17.02.1969
Neðri deild: 45. fundur, 89. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (472)

39. mál, fyrirmæli Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Allshn. Nd. tók fyrir á fundi sínum 12. febr. s.l. frv. til l. um framkvæmd fyrirmæla Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, en það frv. hafði áður gengið í gegnum Ed. og verið samþ. þar óbreytt. Allshn. Nd. var sammála um það að leggja til, að frv. yrði samþ. í d. óbreytt. Nefndarmenn voru allir viðstaddir á fundinum nema einn, Jónas Jónsson, varaþm. Gísla Guðmundssonar. Sem sagt, allshn. Nd. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.