12.11.1969
Sameinað þing: 12. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í D-deild Alþingistíðinda. (3531)

52. mál, lán og styrkveitingar atvinnumálanefndar ríkisins

Fyrirspyrjandi (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Í fyrsta lagi er spurt: Hve miklu fé hefur atvinnumálanefnd ríkisins ráðstafað samkv. lögum nr. 9 1969, og í öðru lagi er spurt um, hve stór hluti af því hefur farið til framkvæmda og fyrirtækja í Reykjavík. Ég tel þessar spurningar svo glöggar, að þær þarfnist ekki neinna skýringa.