03.12.1969
Sameinað þing: 18. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í D-deild Alþingistíðinda. (3654)

951. mál, sjálfvirkt símkerfi

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Í þessum 3. áfanga, sem ég las upp áðan, tók ég fram, að þetta væri að mestu búið. Búðardalur hefur ekki fengið sjálfvirkt símakerfi enn þá, en ég vona, að það verði ekki langt að bíða eftir því. En ég get því miður ekki sagt það hér í dag, án þess að ráðfæra mig við póst- og símamálastjóra, hvenær það verður. En ég vona, að ekki þurfi lengi að bíða eftir því.