01.04.1970
Sameinað þing: 42. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 888 í D-deild Alþingistíðinda. (3854)

921. mál, lánveitingar úr fiskveiðasjóði

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Í tilefni af ósk hv. síðasta ræðumanns um, að þm. verði látnar umræddar upplýsingar í té, þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu og mun beita mér fyrir því, enda er ekkert í þessum plöggum, hvorki reikningunum né þeim upplýsingum, sem ég gaf, sem leynd hvílir á.