29.03.1971
Neðri deild: 75. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í C-deild Alþingistíðinda. (2697)

15. mál, námskostnaðarsjóður

Frsm. minn hl. (Sigurvin Einarsson):

Herra forseti. Að fenginni þessari yfirlýsingu frá hæstv. menntmrh. um skipan mþn. til að undirbúa fyrir næsta þing 1öggjöf um námsstyrkjakerfi til að jafna aðstöðumun æskufólks til menntunar, þá teljum við flm. svo sterkar líkur fyrir því, að slík löggjöf verði sett á næsta þingi, að úr því sem komið er, getum við sætt okkur við þessa lausn að þessu sinni.