01.04.1971
Neðri deild: 80. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (991)

249. mál, aukatekjur ríkissjóðs

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft frv. þetta til meðferðar, og mælir n. með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Hér er um að ræða breytingu á lögum vegna hins nýja fasteignamats, sem gert er ráð fyrir að taki gildi 1. maí n. k., og breytingar á aukatekjum ríkissjóðs með tilliti til þess.