10.05.1972
Efri deild: 78. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2028 í B-deild Alþingistíðinda. (2251)

150. mál, sala Markúsarsels, Tunguhlíðar og Veturhúsa í Geithellnahreppi

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls, sem fór fram hér í d. fyrir fáum dögum, gerði ég grein fyrir efni frv. og benti á, að landbn. Nd. hefði fengið umsagnir frá Landnámi ríkisins og jarðeignadeild ríkisins um frv.

Landbn. þessarar d. hefur athugað þetta mál og kynnt sér þær umsagnir, sem fyrir liggja, og mælir einróma með því, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.