22.11.1971
Neðri deild: 15. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (233)

22. mál, gjaldaviðauki

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka er samhljóða frv. um þetta efni, sem lögð hafa verið fram á mörgum undanförnum þingum. Fjhn. hefur fjallað um þetta frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.