31.01.1972
Neðri deild: 36. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2378 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)

Launa og kaupgjaldsmál

Forseti (GilsG):

Þessar umr. utan dagskrár hafa nú staðið nokkuð á aðra klukkustund. Upphaflega var hér spurzt fyrir um alveg tiltekin afmörkuð atriði, en ég sé nú ekki betur en umr. séu að snúast upp í almennar umr. um launamál og efnahagsmál og vil á það benda, að eðlilegra væri, að slíkar almennar umr. færu ekki fram utan dagskrár, heldur á annan veg.