13.05.1972
Neðri deild: 77. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (GilsG):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Reykjavík, 12. maí 1972.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Birgir Kjaran hagfræðingur, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Jóhann Hafstein,

1. þm. Reykv.

Birgir Kjaran hefur áður tekið sæti á þessu þingi og býð ég hann velkominn til þingstarfa.