18.12.1971
Neðri deild: 31. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (326)

86. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Það er alveg augljóst eftir þessu frv., að það er stjórnin, sem fer með valdið í þessum málum. Og hún getur auðvitað óskað eftir hverjum þeim upplýsingum, sem hún kýs, áður en ákvörðun er tekin um einstakar lánveitingar.