20.12.1971
Efri deild: 37. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (340)

86. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Í framhaldi af fyrri ummælum mínum við fyrri umr. þessa máls, þá vildi ég gera þá grein fyrir atkv. mínu nú og tel reyndar brýna nauðsyn á, að það komi hér fram, að þrátt fyrir þau ákvæði, sem ekki virðast hafa verið möguleikar á að fá breytt í frv. varðandi framkvæmdastjórn þessarar stofnunar, þá mun ég eftir sem áður greiða atkv. með frv. og segi því já.